Draumur

 Mig dreymdi kynferðislegan draum í nótt. 

Ég var úti seint um kvöld. Það var stjörnubjart og fólk safnaðist saman skammt frá mér. Ef ég man rétt hittist fólk þarna reglulega til að horfa á stjörnurnar, og hafa eina heljarinnar orgíu. 

Ég var utanaðakomandi og var að frétta af þessu í fyrsta skipti. Þetta vakti strax forvitni mína og eftir að hafa spurt ansi margra spurninga ákvað ég að prófa að vera með. Það var hellings undirbúningur sem fylgdi þessu, hlutir að huga að og spurningar að svara. Fólk var að koma á staðinn og að græja sig áður en að sjálfur viðburðurinn byrjaði. 

Ég man að ég var orðin spennt og rosalega gröð við tilhugsunina. Ég vissi að þarna voru margir karlmenn og að ég yrði sennilega spennandi nýja gellan. Ég var bæði uppfull af tilhlökkun en líka smá kvíðin, hvað ef ég næði ekki að standa mig? Hvað ef ég fengi nóg áður en þessu lyki? Hvað ef þetta væri bara alveg frábært í alla staði? 

Það styttist í að þetta myndi hefjast og ég ákvað með sjálfri mér að sleppa algjörlega fram af mér beislinu, taka þátt í öllu og njóta mín. Ég fann líkama minn bregðast við og hitna við tilhugsunina. Greddan ætlaði að taka af mér öll völd og það var alveg að koma að þessu.... 

og þá vaknaði ég. 

Það er yfirleitt lenskan hjá mér að ég vakna áður en það gerist eitthvað djúsí og/eða áður en ég fæ fullnægingu. Þá vakna ég yfirleitt gröð og frekar svekkt yfir því að fá ekki að upplifa það sem til stóð. 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Já... þú misstir af stóra geimverupartýinu árið 1993. Held að það hefði verið góður draumur 😉

https://lemurinn.is/2014/02/04/thaer-koma-thegar-geimverur-lentu-naestum-thvi-a-snaefellsjokli-arid-1993/

Kveðja
ComputerSaysNo
Prinsessan sagði…
Ég man eftir þessu! Og var alveg svolítið spennt. Ég fór samt ekki, enda bara krakki þá.
Vonbrigðin voru svosem ekki mikil þegar þær mættu ekki.

Vinsælar færslur