Kynlífstölfræði

Ég datt niður á rannsókn sem sýndi að ungt fólk stundar minna kynlíf núna en fólk á sama aldri fyrir 35 árum síðan.

Árið 1991 voru 50% stúlkna og 40% stráka farin að stunda kynlíf á aldrinum 14 - 18 ára. Það hlutfall var komið niður í 30% hjá bæði stúlkum og strákum árið 2021.


Rannsakakendur vildu meina að nokkrir þættir gætu legið þarna að baki.

-Meiri skjátími og samfélagsmiðlanotkun - sem dregur úr félagslegum samskiptum augliti til auglitis.

-Aukinn kvíði og þunglyndi meðal ungs fólks.

-Breyttar stefnumótavenjur sem sýna að færri hittast í eigin persónu.

-Meiri áhersla á nám og vinnu hjá ungu fólki.

-Aukin notkun kláms sem getur haft áhrif á væntingar og hegðun.

-Færri krakkar voru í föstum samböndum á unglings- og unglingsárum nú en áður.


Mér finnst allt í lagi að krakkar séu ekkert að drífa sig að stunda kynlíf. Ég læt það vera að hlutfall þeirra sem ekki eru farin að stunda kynlíf á þessum aldri hækki. 
Rannsóknir sýna nefnilega að unglingar sem fá góða kynfræðslu byrja seinna að stunda kynlíf og geri það á öruggari máta en þeir sem ekki fá kynfræðslu. Allt gott og blessað. 

Nema!! 
Þegar ég fór að grúska meira þá komst ég að því að fullorðið fólk stundar minna kynlíf í dag en fyrir 35 árum. 

Fólk á aldrinum 18-44 ára stundaði kynlíf að meðaltali 60-70 sinnum á ári fyrir 35 árum síðan. Þessi tala er komin niður í 54! Það er bara einu sinni í viku og svo aukalega á afmælisdögum. Rannsakendur vildu meina að ástæðurnar væru þær sömu og hjá unga fólkinu. 

Ég legg til að við leggjum frá okkur símana, hendumst út á lífið, gerum okkur dagamun og breytum þessari þróun! 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Langt síðan ég hef poppað hér inn en alltaf jafn skemmtilegt að sjá pósta og komment frá sjónarhorni kvenna... Sérstaklega þegar maður öfundar þá sem eru kynlífsfélagar þeirra

Ég held að ég sé að skemma þess meðaltöl sem þú vísar til... en ekki til hækkunar.. því miður.

Telst þaðsem kynlíf að stunda kynlíf með maka tæplega 1 sinni á 6 mánaða fresti eða flokkast það sem kynskipti því það er vart hægt að flokka það till lífs.

Kveðja
dojob
Prinsessan sagði…
Þú ert greinilega lifandi dæmi um þessa kynlífstölfræði. Fólk stundar minna kynlíf núna en áður! Það er agalegt, því kynlíf er svo afskaplega hollt. Og gott ;)

Vinsælar færslur