Breiðholt = perrholt?
Ég á mér draum.
Ég á mér draum um það að litla bæjarfélagið sem ég bý í núna verði griðarstaður fyrir perralinga. Þar sem samfélagið er lagskipt. Perralingar innan um vanillur og aðra perralingar. Þar sem perralingar vita hver af öðrum, og eiga sitt eigið samfélag. Perrar geta þá kíkt í kaffi til annarra perra og notið þess að umgangast fólk á sömu bylgjulengd. Án þess að þurfa að burðast með skápinn á eftir sér hvert sem þeir fara. Á sama tíma myndu vanillurnar, í sínu vanillu-lagi, ekki vita neitt af perralingunum.
Ég fer alla jafna ekki leynt með þennan draum minn og langar rosalega að hann gæti orðið að veruleika.
Og viti menn! Eftir að ég fór að hafa orð á þessu þá hefur komið á daginn að í þessu litla bæjarfélagi sem ég bý í búa alla vega fjórir aðrir perralingar!! Ég myndi halda að það væri strax bara nokkuð góður árangur.
Ég var að viðra þetta á munchi um daginn. Sessunautur minn benti þá á að í Breiðholtinu byggju margir perrar. Hann gat talið allavega 10 í fljótu bragði. Hann vildi meina að Breiðholtið ætti meiri séns í að verða perra-útópían sem mig dreymdi um.
Því var ég auðvitað alls ekki sammála! Ég benti réttilega á að þó svo að það byggju greinilega fleiri perralingar í Breiðholtinu, þá væru það ekki nema 0,5 perri á hverja 1000 íbúa. Á sama tíma státaði mitt bæjarfélag á ca 1 perraling á hverja 100 íbúa.
Geri aðrir betur!
Ummæli
engin hefur áhuga á að nota hana aftur. Það væri hægt að nota ávexti sem tákn, likt og ananasinn og swingið. En þá færu allir Garðbæingarnir aftur að mistúlka fólk í óperralegum gjörningi við innkaupin sín. Er það þá seacret handshake sem verður við líði í efribyggðum?
Líka þannig að þú verður að komast inn í það af öðrum vetvangi en á plokkdeginum eða á happy-hour á barnum. Þá hittiru kannski einhvern á munchi eða í partýi og kemst að því að viðkomandi býr nálægt, og þá er hægt að bjóða viðkomandi í kaffi.
Mögulega væri hægt að vera með merki FL einhversstaðar sýnilegt. Lítill límmiði á bílnum eða barmmerki. Ef þú þekkir það, þá þekkiru það.
En ég ætla ekki að tala fyrir Perrholt, enda bý ég ekki þar. Ég er aðallega að hugsa um næsta 5 km. radíusinn eða svo.
Kveðja
ComputerSaysNo