Fallegi floggerinn minn
Endur fyrir löngu þá fór góð kinky vinkona á LAM. Ég lét hana hafa pening fyrir ferðina, og bað hana að kaupa fyrir mig einn af margrómuðu Jacks floggerum.
Eftir ferðina hitti ég hana og hún afhenti mér þennan dásamlega flogger. Hann var veglegri og dýrari en ég ég hafði beðið hana um að kaupa fyrir mig, en hún sagði að hún hafi strax vitað að þetta væri rétti floggerinn fyrir mig. Sem var hárrétt hjá henni. Hann var með dökkbrúnu handfangi með rauðum blæ, leðrið í honum var elgs leður, dökkbrúnt á litinn, og það örlaði út í að vera vínrauður blær á því. Leðrið var mjúkt, loftkennt og létt. Það létt að það var vel hægt að lemja mjög fast með honum, án þess að meiða fórnarlambið mikið.
Ég elskaði hann!!
Ég elskaði að lemja með honum og ég elskaði að vera lamin með honum. Þó hann væri ekki stærstur eða þyngstur, þá var hann klárlega fallegastur og veitti þessi sérstöku högg. Ég gjörsamlega sveif þegar ég fann hann lenda á bakinu á mér.
Seinna meir ákvað ég að fá mér aðra floggera. Ég pantaði þá tvo af netinu. Myndirnar af þeim voru flottar. Annar var með 100 þráðum, þungur og vígalegur. Hinn var með mjóum reimum og leit út fyrir að stinga eins og andskotinn! Umsagnirnar voru góðar, svo ég sló til.
Þegar þeir komu var leðrið í þeim alltof þurrt, og þeir voru stífir og þunglamalegir af þeim sökum. Þannig að ég tók mig til að baðaði þá í olíu til að mýkja leðrið. Það virkaði mjög vel og eftir meðhöndlunina urðu þeir miklu betri.
En! Eftir að hafa baðað þá upp úr olíu hengdi ég þá upp. Við hliðina á dásamlega Jacks-floggernum mínum. Alveg upp við hann. Og hann drakk í sig olíuna frá floggernum við hliðina á sér. Ég ákvað að reyna að gera eitthvað í því, og prófaði að þvo hann, en það gerði það að verkum að hann missti eiginleika sína. Hann hætti að vera þessi létti og mjúki flogger sem ég dýrkaði. Reimarnar urðu þéttari og stífari og hvað sem ég reyndi gekk það ekki til baka.
Ég varð mjög leið og syrgði hann mjög lengi. Ég gat ekki hugsað mér að nota hann eins og hann var, og var sár út í klaufaskapinn í sjálfri mér. Uppáhalds uppáhalds floggerinn minn var ónýtur!! Og ekki hlaupið að því að fá annan flogger úr elgs-húð og hvað þá svona fallegan. Ég var farin að sætta mig við að eignast aldrei aftur annan á pari við þennan.
Nema hvað! Umræddur Jack setti mynd inn á fetlife af flogger, sem var gullfallegur og ekki ósvipaður mínum gamla. Ég sendi honum fyrirspurn, og jú, ég mátti kaupa gripinn. Meira að segja hafði hann búið til annan svolítið stærri úr sama efni. Ég mátti velja hvorn ég vildi.
Þið megið geta hvorn ég keypti...

Ummæli