Bridgerton

Hver elskar ekki sjóðheitt búningadrama? Heitar ástir, stolnar stundir og allskonar ævintýri. Já takk!! 

Enda drakk ég í mig seríu fjögur þegar hún kom út. 

Í einni senunni fer söguhetjan inn á skemmtistað/hóruhús/kynsvalls-partý. Þar var fólk mis mikið klætt, í mis miklum atlotum, út um allar trissur virtist vera. Í ganginum, í stofunni, í tröppunum upp á næstu hæð... og hvað gæti svo verið að gerast á efri hæðinni? 

Ég horfði heilluð á þetta atriði, og komst að því að ég væri til í að upplifa þetta. Svona partý! Þar sem fólk er einhvernveginn bara að njóta sín og annarra.
 
Ég væri til í að prófa að fara í svona partý. Að horfa á aðra njóta sín í allskonar atlotum, og jafnvel sleppa fram af mér beislinu og láta vaða sjálf. Gera eitthvað sóðalegt með bláókunnugri manneskju, þar sem aðrir gætu séð til og mögulega tekið þátt líka.

Kannski er það bara af því að ég var að skoða kynlífklúbba um daginn, en hugmyndin kveikir í mér. 

Eru svona partý haldin á Íslandi eða þarf ég að fara að bóka mér flug til Amsterdam?

Ummæli

Vinsælar færslur