Hvernig kemst maður að því sem maður vill?

Ég fékk gervigreindina með mér í lið við að finna út úr því hvað það væri sem ég vildi út úr leikfélagasambandinu mínu.

Copilot kom með nokkrar spurningar til ígrundunar, sem áttu að varpa ljósi á þetta allt saman. 




Leikfélaginn fékk þá heimavinnu að svara þeim fyrir sig, en ég svaraði þeim samviskusamlega fyrir mig. Síðan ætluðum við að bera saman svörin okkar.

Hérna er það sem ég er komin með:

Hvað viltu fá út úr samskiptunum?

Þegar þú hugsar um samband okkar: hvað er það sem þú vilt að það gefi þér?

Ég vil að það gefi mér öryggi og rými til að prófa mig áfram og leika. Þróa áfram BDSM leikina, ganga lengra, gera nýtt og byggja upp dýpri leiki.

Hvað er það sem þú ert að leita að í tengslum við mig?

Trausti, að vera séð, að fá rými til að sleppa fram af mér beislinu, öryggi til að leyfa mér að vera lítil.

Hvað er það sem þú vilt ekki?

Ég vil ekki fá misvísandi skilaboð, að það sé gert lítið úr mér á einhvern hátt, að upplifa að ég skipti ekki máli, eða að það sem skiptir mig máli sé sópað undir teppi, hummað fram af sér, eða gert lítið úr því. Ég vil ekki upplifa að það sé verið að stytta sér leið við eitthvað sem skiptir mig máli. Ég vil ekki vera að giska á merkingu á bak við orð eða gjörðir.


Hvernig sérðu mig í þínu lífi?

Hvernig sérðu mig passa inn í daglegt líf þitt?

Reglulegir leik-hittingar. Regluleg samtöl og samskipti. Jafnframt að gera eitthvað saman, eins og að fara á munch, í partý, o.s.frv. 

Hvaða hlutverk sérðu mig gegna í lífi þínu ef þú ert alveg heiðarleg við sjálfa þig?

Kinky-partner in crime. Mig langar að við eigum saman okkar leikfélagasamband. Náið, innilegt, skemmtilegt, litríkt. En líka vinur og félagi.

Hvernig upplifirðu nærveru mína í þínu lífi — hvað gerir hún fyrir þig?

Mér finnst gaman að hafa þig í mínu lífi. Þú færð mig til að hlæja, og hugsa. Ögrar, en ert samt skynsamur, þarft ekki að vera sammála mér og heldur þínu. Veist endalaust mikið um allskonar. Og ég elska að fræðast.

Hvað myndi vanta í líf þitt ef ég væri ekki þar?

Það myndi vanta leikfélaga!!! Það er alls ekki gott. Það myndi vanta félagsskapinn, spjallið og glettnina frá þér. Svo myndi sárlega vanta hendurnar þínar og snertinguna frá þeim.


Hvað viltu fá frá mér?

Hvað er það sem þú vilt fá frá mér í samskiptum — í verki, í orðum, í nærveru?

Ég vil fá heiðarleika, ég vil fá tíma, ég vil fá falleg orð, hlustun af athygli, hvatningu, kúr. Ég vil fá að vita hvað þú vilt, hvað þig langar, og hvað þér finnst. Um mig, um okkur, um lífið og tilveruna.

Hvaða tegund af stuðningi, nánd eða tengingu skiptir þig mestu máli frá mér?

Það skiptir mig máli að fá andlegan stuðning, nánd og hvatninu, að þú segir mér til hvers er ætlast af mér og sért leiðandi.

Hvað er það sem þú saknar eða vilt meira af frá mér?

Mig langar í meiri leiki, lengri leiki, formaðri leiki.
Mig langar í prufu leiki, með léttu og óformlegu andrúmslofti, mig langar í formlega leiki þar sem ég get sokkið mér í subspace í lengri tíma.
Mig langar að ræða langanir og fantasíur tengdar kinkinu. Mínar og þínar. Hvað þig langar að upplifa, hvað heillar o.s.frv.

Hvað er það sem þú vilt ekki fá frá mér?

Ég vil ekki upplifa höfnun.


Hvers þarfnastu frá mér til að sambandið virki?

Hvað þarft þú frá mér til að geta verið í sambandi sem nærir þig?

Athygli, markvissan tíma (ekki endilega svaka langan, en fulla athygli þegar það á við), að finna að þú viljir mig, sækist í mig og helst gangir svolítið á eftir mér. Að finna að ég skipti þig máli, ekki bara ég, heldur sambandið og það sem við erum að gera. Að það sé okkar.

Hvað þarftu frá mér til að líða öruggum, séðum, eða tengdum?

Athygli, tími, spurningar um mína upplifun, og að heyra þína upplifun á því sem við gerum saman,  hvort sem það er leikur, kynlíf, munch, eða  partý.
Að finna það að mín upplifun og líðan í sambandinu skipti þig máli.

Hvaða hegðun eða nálgun frá mér hjálpar þér að opna þig?

Kyrrð, rólegt spjall, snerting.

Hvaða mörk eða rými þarftu frá mér til að sambandið verði heilbrigt fyrir þig?

Ég þarf að finna að þú hafir skýr mörk, það veitir mér öryggi.
Ég þarf að vita og finna að einhver hegðun hafi afleiðingar, og því sé fylgt eftir. T.d. ef ég er ekki að standa mig að einhverju leiti, trassa eitthvað, passa ekki tímann, standa ekki við það sem ég segi, því ég gæti vaðist upp í einhverri vitleysu, sem grefur undan mínu trausti á okkar sambandi. Ég þarf að finna og vita til hvers er ætlast af mér.
Ég þarf að geta dregið mig í hlé og kúplað mig út stundum, mögulega biðja um næði til að hlaða batterýin með einveru.
Ég þarf pláss til að vera ég. - Þetta er tilfinning sem ég get ekki skýrt betur.


Að þínu mati, hvað telur þú að sambandið okkar þurfi til að ganga?

Það þarf vilja til að rækta leikfélagasambandið, eins og einingu utan okkar tveggja. Sem þarf að sinna markvisst til að það dali ekki. Það þarf meðvitað að setja í það tíma, og vinnu, fyrir, eftir, í og allt um kring um leikina.

Það þarf vilja á báða bóga til að vera hreinskilin um okkar þarfir, langanir og væntingar.

Það þarf hugrekki til að vera berskjaldaður og ræða opinskátt um langanir, fantasíur og þrár án þess að vera dæmdur.

Það þarf að ríkja traust og virðing á báða bóga til að mæta hinu þar sem það er, til að taka tillit til þarfa hvers annars og vilji og þroski til að gera það á sem bestan máta. Á sama tíma þarf maður að vera meðvitaður um eigin þarfir, og langanir til að hægt sé að tjá þær, á opinn og heiðarlegan máta.

Það þarf að vera vilji til að tækla vandamál sem koma upp sem eitthvað sem við tæklum saman, þar sem spurningin er ekki þú vs. ég, heldur hvernig getum við saman tekist á við vandann til að komast í kringum hann.

Það þarf að vera gaman!! Skemmtilegt, og regluleg nýbreytni.


Eftir að hafa svarað þessum spurningum fannst mér ég sjá sjálfa mig, mínar þarfir og langanir í mun skýrara ljósi. Ég mæli með því að önnur pör geri þetta líka. Ykkur er velkomið að nota þessar spurningar, en endilega komið með ykkar eigin svör. 

Ég hlakka til að sjá hvað leikfélaginn hefur skrifað, og hvernig þetta hljómar saman. 

Ummæli

Vinsælar færslur