Afleysingar

Ég er að leysa af í vinnunni. Einmitt þegar ég skrifa þetta er fólk að ganga inn og út úr rýminu, skrafa saman og gera það sem þarf að gera. Ég er bara á vaktinni og hef þess vegna eytt undanförnum klukkutíma í að skrifa svæsnar bloggfærslur sem birtast von bráðar á blogginu. Krassandi lýsingar af sérlega æsandi atvikum í kyn- og kink-lífinu sem mig hefur langað að deila með ykkur. Þankar sem kveikja neistann innra með mér fá geirvörturnar til að taka við sér og fiðring fara um aðra staði líkamans. Meira að segja er ég byrjuð á einni sögu.



Ég passa að halda andliti, sit alvarleg og einbeitt og pikka ákveðið á lyklaborðið. Fyrir þau sem horfa á mig utanfrá er ég sérlega dugleg, að nýta tímann í að sinna öðrum verkefnum. Eflaust halda þau að ég sé að undirbúa mína vinnu, skrifa pósta og skipuleggja eitthvað. Mögulega að græja eitthvað sem hefur setið á hakanum. 


Ef þau bara vissu að ég sit hérna og skrifa um krassandi kynlíf og ástríður sem fá blóðið til að ólga. Að ég sé í rauninni að skrifa um atvik þar sem mér var riðið, þar sem píkan mín fékk athygli og munnur minn gældi við harðann lim. Þar sem við engdumst um og fórum hamförum í losta og unaði. 

Sem betur fer er veggur fyrir aftan mig, þannig að enginn er að fara að koma óvænt aftan að mér og horfa yfir öxlina á mér. 


Þá hugsa ég að ég myndi nú ekki þora þessu, og væri þá í alvöru að nýta tímann í að vinna vinnuna mína. 





Ummæli

Nafnlaus sagði…
Mikið hlakka ég til að lesa

Vinsælar færslur