Af berskjöldun og kinki

Leikfélagi minn var að fara núna áðan.

Þegar ég horfi yfir farinn veg þá sé ég að ég hef tekið nokkur þung skref undanfarið. Ég neita því ekki að það hefur tekið á. Meira en ég kannski gerði mér grein fyrir.

Í gærkvöldi var enn eitt erfiða skrefið tekið, þar sem við lágum saman í mykrinu í rúminu mínu. Við ræddum um heima og geyma, lífið og tilveruna og okkur. Ég berskjaldaði mig og orðaði hluti sem íþyngja mér. Hvernig okkar samskipti kæmu við mig, og hver væri minn stærsti ótti í öllu þessu. Það er að þrátt fyrir vilja á báða bóga, þá værum við einfaldlega það ólík að við gætum ekki mætt þörfum hvers annars. Í myrkrinu upplifði ég mig berskjaldaðri en ég hafði nokkurn tíman gert í þessu sambandi. Ég var bæði aum og óviss, en hann mætti mér, mannlegur og þolinmóður. Hann reyndi ekki að lofa öllu fögru, en ég fann hvernig hann var til staðar; hvernig hann hélt utanum um mig og hvernig hann hlustaði á mig. Þarna fann ég svo vel að ég skipti hann virkilega máli.

Núna þegar ég sit eftir ein með hugsanir mínar, þá finn ég hungur, en ekki hungur eins og áður, eins og mig vanti eitthvað. Heldur annars konar hungur.
Mig hungrar í leik með honum. Mig hungrar í að þjóna honum. Að hann setji hálsól á mig, að hann bindi mig, að hann berji mig, að hann láti mig finna fyrir því. Að líkami minn sé hans leikvöllur. Mig hungrar í að engjast um undan atlotum hans. Mig hungrar í augnaráð hans þegar ég er berskjölduð og varnarlaus. Mig hungrar í að finna floggerinn lenda á mér.

Þetta er mikil uppgvötun fyrir mig. Þetta sýnir svo bersýnilega hvað tilfinningalegt öryggi skiptir mig miklu máli þegar kemur að leikfélagasamböndum.

Núna, þegar ég veit að ég get verið aum, óviss og berskjölduð með honum, og að hann getur haldið utanum mig, veitt mér skjól og öryggi án þess að reyna að laga hlutina eða bjarga málunum, þá upplifi ég þetta djúpstæða öryggi gagnvart honum sem virkilega kveikir á undirgefnu hliðinni minni. Mig langar ekkert meira en gefa mig honum á vald, að hann noti mig og leiki sér með mig.

Ég beinlínis hlakka til þess sem koma skal! Því núna er ég virkilega mikið á þörfinni.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Vel gert, þú, og þið. Að tala svona saman.

Vinsælar færslur