Skammgóður vermir

Því miður gekk dæmið svo ekki upp hjá mér og…. þá núna; fyrrum leikfélaga mínum.

Ég er virkilega leið yfir því, en á sama tíma er ég líka viss um að þetta var rétt ákvörðun. Mig langar alls ekki að kryfja þetta neitt meira hérna. Það er bara á milli mín og hans.

Mig langar samt að segja að þessa dagana er ég í sorg.



Ég syrgi þetta fallega samband sem við höfðum.
- Leikina sem voru alltaf skemmtilegir og ófyrirsjáanlegir, hvað ég elskaði það að vita ekki hvað kæmi næst.
- Símtölin sem oft voru langt fram yfir minn háttatíma, þar sem við skeggræddum allt á milli himins og jarðar.
- Draumarnir og fantasíurnar. Allt sem við töluðum um að gera saman, en verður ekki úr þessu.


Ég sakna handanna hans, sem höfðu einstakt lag á að finna sér leið til mín. Allar litlu snertingarnar sem voru svo notalegar, en sem gátu líka verið svo óendanlega æsandi.
Ég sakna augnarráðsins, þegar hann horfði á mig með þessi litla brosi, eins og það sem ég var að segja honum væri svo ótrúlega áhugavert og kímlegt á sama tíma.
Ég sakna þess að finna hendurnar hans taka utanum mig og hvíla í faðmlagi hans.
Ég sakna þess að heyra röddina hans.
Ég sakna kossanna hans.

Ég sakna hans.


Ég ætla að leyfa mér að sakna hans í nokkra daga í viðbót.

Síðan þarf ég að einbeita mér að mér sjálfri, til að byggja mig sjálfa upp, svo ég geti betur staðið með sjálfri mér í því sem koma skal.

Ég veit það fyrir víst að það eru fleiri leikfélagar í sjónum, ég þarf samt að æfa sundtökin fyrst áður en ég hoppa aftur út í.



Ummæli

Nafnlaus sagði…
Ef það hjálpar þér eitthvað, þá færðu rafrænt knús.....
Nafnlaus sagði…
❤️

Vinsælar færslur