Þættinum bárust spurningar

Er senan hérna á Íslandi nógu stór s.s með margar kvk sem hjálpa mönnum að stíga sín fyrstu skref hvað sína eigin undirgefni varðar?

Hvenær uppgötvaðir þú þínar kenndir og hvenær fórstu að nálgast aðra með þessar langarnir?


Senan á Íslandi er lítil. Einfaldlega af því að Ísland er lítið. Ég hugsa að við gætum verið hlutfallslega frekar stór, enda er Ísland stórasta land í heimi með allskonar heimsmet, miðað við höfðatölu. 
Það er iðullega góð mæting í partý og á viðburði eftir minni bestu vitund. Ég get ekki lofað þér að þú finnir konu sem er til í að leika við þig, en ákaflega óvísindaleg tölfræði segir að þeir sem mæta á viðburði og koma vel fyrir eiga margfalt meiri möguleika en þeir sem fela sig á bak við tölvuskjáinn. Að sama skapi þá skiptir miklu máli hvernig maður kemur fyrir.

Persónulega finnst mér ekkert eins fráhrindandi og undirgefnir karlmenn sem hafa ekkert að færa, geta ekki haldið uppi samræðum og eru með sjálfa sig og sínar eigin þarfir á heilanum. Löngunin til að leika hjá mér kemur eftir að ég kemst að því að þú ert áhugaverð og skemmtileg manneskja sem hefur eitthvað fram að færa. 

Ég held að ég skelli í heila færslu varðandi það að stíga sín fyrstu skref í senunni. 

Hvenær uppgötvaðir þú þínar kenndir og hvenær fórstu að nálgast aðra með þessar langarnir?

Allir sem þekkja eitthvað til mín hafa eflaust heyrt söguna af því þegar ég uppgvötaði BDSM.
Það var spjall á irc-inu í gamla gamla daga. Ég var örugglega 18 eða 19 ára. Ég lenti á spjalli við mann sem hafði ekki áhuga á kynlífi og það eitt fannst mér stórfurðulegt. Hann hafði áhuga á BDSM, og sagði mér í stuttu máli um hvað það snérist. Það varð ekki aftur snúið fyrir mig. 

Fljótlega setti ég mig í samband við aðra á sömu línu og eftir smá tíma var ég orðin partur af félagsskap ungs fólks sem kallaði sig UFSM - ungt fólk og SM. Við vorum reglulega með hittinga sem líktust munchunum. 

Ekki svo löngu seinna hitti ég fyrsta leikfélagann minn sem ég lék reglulega við í einhver ár. En allt byrjaði það með spjalli um daginn og veginn og almennt um BDSM. 


Ummæli

Vinsælar færslur