Ein ný skilaboð
Eftir að við leikfélaginn slitum okkar sambandi þá breytti ég sambandsstöðunni á fetlife. Ég fór úr því að vera merkt undirgefin honum yfir í ekkert. Ekki nein sambönd skráð. Engin sambandsstaða eða neitt.
Viti menn.... Það liðu ekki nema tveir dagar og þá var ég komin með skilaboð frá einhverjum dúdda. Hann bauð upp á "hey!" og var með nærmynd af tippinu á sér sem prófílmynd.
Spennandi tímar framundan.
Ummæli
Jahérna hér... svona frumlegheit eru nú svo gefandi 🫠
Verð samt að viðurkenna að óumbeðin brjóstamynd myndi líklega kæta 99% karlmanna. Skiptir þá engu hvort þeir séu streight eður ei.
Vonandi gengur sambandsslitsbatinn hægt en örugglega fyrir sig og við fáum að sjá glitta í púkaglott í gegnum skrifin.
Kveðja
ComputerSaysNo