Útlönd
Ég var erlendis í síðustu viku. Í borg með mörg hundruð þúsund íbúum þar sem miðbærinn iðaði af lífi. Nánar til tekið í Kaupmannahöfn.
Ég drakk í mig stemminguna og naut þess að fylgast með fólkinu, sem var í bland heimamenn og ferðamenn. Ég leyfði mér að fylgjast með og taka eftir. Ég sá staka einstaklinga, karla og konur, pör, fjölskyldur, mæðgur, ömmur og afa með barnabörnin. Allt í bland.
Kannski af því að ég var í svo góðu skapi og kannski af því að við vorum í ferðamannabúbblunni virtust allir svo glaðir og ánægðir með lífið. Þetta kitlaði mig.
Þetta kitlaði mig á máta sem ég bjóst ekki við, því ég fann að þetta kveikti svolítið í mér. Allt í einu langaði mig í ævintýri með einhverjum (einum eða fleirum) af þessum fjölmörgu mönnum sem gengu um Strikið. Hugmyndin um að ókunnugar hendur léku um mig kviknaði, minn líkami upp við annan, húð við húð. Kæruleysið sem fylgir því að vera langt í burtu frá heimaslóðum og að það yrðu engir eftirmálar heillaði mig.
Ef ég hefði verið ein á ferð, eða einfaldlega ekki í vinnuferð með öðru fólki, þá hefði ég kannski látið slag standa.
Í staðinn lét ég mig bara dreyma.
...eru ekki einhverjir kynlífsklúbbar í Köben?
Ummæli