Titrari sem snýst í hringi

Lengi lengi vel langaði mig í svoleiðis. Ég gerði dauðaleit á aliexpress eftir einum slíkum í haust sem leið, eins og sést í þessari færslu. Á endanum tókst mér þó að finna svona græju, eins og kom fram í þessari færslu, sem birtist nokkrum dögum á eftir hinni. Svo þegar ég átti smá pening aflögu þá lét ég verða af því að panta mér einn slíkan. Ég hef sjaldan beðið jafn spennt eftir dóti en loksins þegar pakkinn kom í hús þá áttaði ég mig á því ef til vill hefði ég átt að kynna mér stærðina á honum betur.
Apparatið var pínu lítið! Myndin af dótinu gaf langt frá því rétta mynd af því. Ég varð ekkert smá svekkt með það. Hinsvegar komst ég að því að það er vel hægt að nota dótið og ég fíla það í tætlur. Næst þegar ég panta mér svona titrara, eða öðru vísi, þá mun ég ganga úr skugga um að stærðin sé eftir mínum væntingum. 

Ummæli

Vinsælar færslur