Enn meira af typpamyndum
Ég hlýt að vera eitthvað óvenjulega gröð þessa dagana.
Afhverju? Jú, af því að allt í einu hafði ég ekkert út á tippamyndir á fetlife að setja. Jafnan vil ég ekki hafa berstrípaðar tippamyndir fyrir augunum og hef mínar skoðanir á eigendum þeirra.
Það eru
samt alveg til mjög heitar tippamyndir þarna úti. Þar sem lögulegur limur er
sýndur að hluta til, frá flottu sjónarhorni eða í spennandi aðstæðum. Myndir sem
geyma loforð um eitthvað meira. Þar sem ímyndunaraflið fær rými til að hlaupa
með mann. Hinar, þar sem limurinn er í forgrunni og það má sjá sæng í kuðli og
fætur í íþróttasokkum úr fókus í bakgrunni eru bara ekki að gera sig.
Ég rakst
sem sagt á þessi skrif frá einum inni á fetlife, þegar hann var spurður út í typpamyndir:
In explicitly sexual spaces like Fet, graphic self-display is
normalized. People use explicit images as signaling, attention, visibility, or
simply self-expression.
(Gervigreindin
bauð upp á þessa þýðingu alls ekki góð, en ég nenni ekki að gera betur: Í
opinskáum og kynferðislegum rýmum eins og Fet er myndræn sjálfsbirting orðin
eðlileg. Fólk notar berar myndir til að senda merki, vekja athygli, verða
sýnilegt eða einfaldlega tjá sig.)
Já, ég gat
alveg samþykkt þessa skýringu. Það sem meira er þá allt í einu kitlaði hugmyndin
um tippamyndir mig og kveikti jafnvel örlítið í mér. Íþróttasokkar í bakgrunni
og allt!
Það er mjög svo óvenjulegt og ég er hálf hissa á sjálfri mér, og þess vegna held ég að ég hljóti að vera mjög svo óvenjulega mikið gröð þessa
dagana.
Vonandi líður þetta bara hjá...
Ummæli