Enn meira af typpamyndum

Ég hlýt að vera eitthvað óvenjulega gröð þessa dagana. 

Afhverju? Jú, af því að allt í einu hafði ég ekkert út á tippamyndir á fetlife að setja. Jafnan vil ég ekki hafa berstrípaðar tippamyndir fyrir augunum og hef mínar skoðanir á eigendum þeirra.

Það eru samt alveg til mjög heitar tippamyndir þarna úti. Þar sem lögulegur limur er sýndur að hluta til, frá flottu sjónarhorni eða í spennandi aðstæðum. Myndir sem geyma loforð um eitthvað meira. Þar sem ímyndunaraflið fær rými til að hlaupa með mann. Hinar, þar sem limurinn er í forgrunni og það má sjá sæng í kuðli og fætur í íþróttasokkum úr fókus í bakgrunni eru bara ekki að gera sig.  

Ég rakst sem sagt á þessi skrif frá einum inni á fetlife, þegar hann var spurður út í typpamyndir:

In explicitly sexual spaces like Fet, graphic self-display is normalized. People use explicit images as signaling, attention, visibility, or simply self-expression.

(Gervigreindin bauð upp á þessa þýðingu alls ekki góð, en ég nenni ekki að gera betur: Í opinskáum og kynferðislegum rýmum eins og Fet er myndræn sjálfsbirting orðin eðlileg. Fólk notar berar myndir til að senda merki, vekja athygli, verða sýnilegt eða einfaldlega tjá sig.)

Já, ég gat alveg samþykkt þessa skýringu. Það sem meira er þá allt í einu kitlaði hugmyndin um tippamyndir mig og kveikti jafnvel örlítið í mér. Íþróttasokkar í bakgrunni og allt!

Það er mjög svo óvenjulegt og ég er hálf hissa á sjálfri mér, og þess vegna held ég að ég hljóti að vera mjög svo óvenjulega mikið gröð þessa dagana. 

Vonandi líður þetta bara hjá... 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Er það ekki af hinu góða að vera gröð eða graður? Ég myndi allavega alltaf kjósa það umfram þess að vera áhugalaus.... Svo.. ég vona innilega þín og þinna lesenda... að það líði ekki hjá.

Kveðja
dojob
Prinsessan sagði…
Vissulega er gredda af hinu góða. En þegar maður er farinn að gefa afslátt af eigin gildum og jafnvel farinn að láta gredduna ganga fyrir... þá er eitthvað ekki eins og það á að vera.
Annars þá skrifa ég ekki endilega mest þegar ég er gröðust, svo lesendur mínir græða ekkert endilega á því. Ég skrifa mest þegar ég er í góðu jafnvægi, hvorki of né van. Enda er það best. :)

Já, ég er aftur komin þangað að nærmynd af tippum gerir ekkert fyrir mig lengur.
Nafnlaus sagði…
Ó dam.. hefði átt að lesa niður allan textann áður en ég sendi... hvernig unsendi ég 😈

Kveðja
dojob

Vinsælar færslur